Spurning

Að taka inn lyf > Getnaðarvarnir > Spurt og svarað > Getnaðarvarnir og kyndeyfð
Getnaðarvarnir og kyndeyfð
Spurning barst þann 27.8.2007
Spurning:

Ég er 23 ára kona og er að taka getnaðarvarnarpilluna Marvelon. Hef tekið hana í um tvö ár núna. Málið er að ég finn til mikillar kyndeyfðar og held að það geti verið af völdum pillunnar. Ég hef prófað að skipta um pillur, var áður á bæði Gynera og Diane Mite og mér finnst þær allar hafa verið mjög svipaðar með þetta að gera. Er einhver pilla þekkt eða góð ef maður finnur til kyndeyfðar? Eða er einhver annar möguleiki fyrir hendi en að taka pilluna fyrir konu eins og mig. Er kannski möguleiki á að fá lykkj

Svar:

Sæl

Það er því miður viðloðandi allar getnaðarvarnir sem innihalda hormón eða hormónalík efni að þær geti valdið kyndeyfð. Mér finnst ólíklegt að þú náir að sannfæra kvensjúkdómarlækni til þess að ávísa á þig lykkjuni ef þú hefur ekki enn eignast þitt fyrsta barn. Það er líka ekki ólíklegt að hún geti haft þessi sömu áhrif á þig því hún gefur frá sér hormón. Það eru þó ekki ástæða til þess að örvænta því það eru alltaf að koma nýjar getnaðarvarnir. Möguleiki er að þú finnir ekki til þessara óþæginda við það að nota lágskammta pilluna, Yasmin, en almenna reglan er að aukaverkanir séu skammtaháðar. Einnig er nýlega komin á markað ný gerð getnaðarvarna, NuvaRing, sem er getnaðarvarnahringur sem reyndar gefur frá sér hormónalík efni en gæti mögulega hentað þér þar sem virknin er aðalega staðbundin. Ráðfærðu þig við kvensjúkdómalækni.

kveðja Friðþjófur lyfjafræðingur