Spurning

Að taka inn lyf > Getnaðarvarnir > Spurt og svarað > 18 ára með sveppasýkingu?
18 ára með sveppasýkingu?
Spurning barst þann 27.8.2007
Spurning:

ég er 18 ára stelpa og ég er með sveppasýkingu
ég var á pensilíni gæti það verið ástæðan sem ég fékk sýkingu? ég er með kekkjótta útferð og stundum er kláði...ég og fyrrverandi kærastinn minn stundum ennþá kynlíf og erum ekkert alltof varkár ekkert mikið verið að pæla í að nota smokka :S en gæti ég hafa smitað hann? er eitthvað sem ég get keypt í apótekinu án lyfseðils til að losna við þetta?

Svar:

Sæl

Sýklalyfja kúr getur mögulega fylgt aukin hætt á sveppasýkingum í leggöngum. Hvort þú ert með slíkt get ég ekki vitað fyrir víst. Við slíkri sýkingu eru til lyf í lausasölu. Aftur á móti það sem mér finnst að þú ættir að gera er að pannta tíma hjá kvensjúkdómalækni og fara í skoðun. Hann á að greina þetta. Saman getið þið einnig farið yfir hvaða getnaðarvörn gæti hentað þér best of fleiri góð ráð sem hann getur gefið þér.

kveðja Friðþjófur lyfjafræðingur