Spurning

Að taka inn lyf > Getnaðarvarnir > Spurt og svarað > Gleymdi 2 dögum af pillunni
Gleymdi 2 dögum af pillunni
Spurning barst þann 27.8.2007
Spurning:

Hæ ég er 21 og ég hef verið á pillunni í 7 mánuði. Ég missti 2 daga tók það sem ég missti ,svo byrjaði ég aftur á túr og ég var ný búin á túr. Eftir þetta kemur skrítið þykkt deplar af dökku blóði og mikið af því. Það kemur stundum svona hjá mér en núna er það mikið og stórt.

Takk M

Svar:

Sæl

Nú tekur þú ekki fram hvaða gerð pillunar þú ert að taka. Hefði verið þægilegra. En þetta gildir svona almennt um flestar: "Ef meira en 36 klst. (1½ dagur) líða á milli tafla þá er getnaðarvörnin ekki lengur örugg og því nauðsynlegt að nota aðra getnaðarvörn þar til spjaldið er búið, fyrir sumar er það 7 dagar. Taflan (töflurnar) sem gleymdist er sleppt og sú næsta er tekin á réttum tíma til að tíðahringurinn haldist réttur.

Þetta er vegna þess að ef stór skammtur af pillunni er tekin í einu getur það ruglað tíðarhringinn. Það er líklega það sem er að gerast hjá þér. Ef þetta lagast ekki skaltu hafa samráð við lækni. Einnig væri ráðlagt fyrir þig að skoða hvort einhver önnur gerð getnaðarvarnar hennti þér betur ef þú ert að gleyma oft að taka pillunna inn. Það eru til t.d. sprautur, vefjatöflur, og hringir settir í leg.

Meira um Getnarðarvarnatöflur hér Ættir að finna upplýsingar um þína þar eða í Lyfjubókinni hér á vefnum.

Kveðja Friðþjófur lyfjafræðingur