Spurning barst þann 27.8.2007
Spurning:
Ég er 16 ára stelpa sem hef áhyggjur af því hvort að ég geti verið ólétt, ég og kærastinn minn gerðum það fyrir um viku síðan án þess að nota smokk, en ég var búinn að taka pilluna þá. Síðan þá hef ég fundið fyrir mikilli óleði.
getur þú eitthvað hjálpað mér í sambandi við hvað ég á að gera???
Svar:
Sæl
Ógleði getur átt sér margar aðrar orsakir sumar hverjar jafnvel mjög alvarlegar. Það þarf ekki endilega að vera að þú sért ólétt. Þú getur nálgast þungunarpróf í næstu Lyfju. Þau eru auðveld í notkun og gefa yfir 99% réttar niðurstöður ef það er framkvæmt frá fyrsta degi sem blæðingar áttu að hefjast. Þ.e. frá þeim degi sem konan er komin framm yfir. Ráðlagt er fyrir þig að tala við foreldra þína. Ef ógleðin gengur ekki yfir ættir þú að hafa samráð við læki.
Kveðja Friðþjófur lyfjafærðingur