Spurning barst þann 27.8.2007
Spurning:
Hæ hæ, ég er í algerum vandræðum og veit ekkert hvað ég á að gera en þannig standa málin að fyrir um viku fékk ég lykkjuna (nova t 380) og síðan þá hef ég verið að fá verki sem líkja mætti við væga túrverki, alltaf af og til og einnig hefur verið að koma hálf þunn og rauðbrún útferð úr leggöngunum.
Þetta minnir mig ekkert á venjulegar blæðingar. Er þetta eðlilegt þegar maður fer á lykkjuna?
Svar:
Það er eðlilegt að þú finnir fyrir smávegis óþægindum til að byrja með á meðan kroppurinn er að aðlagast því að þarna er komin lykkja. Brúni liturinn á útferðinni merkir að hér er um að ræða storknað eða gamalt blóð sem legið er að losa sig við. Þú skalt gefa þessu 2-3 daga í viðbót og sjá hvort þetta hættir ekki að sjálfu sér.
Ef hins vegar þessi seiðingur og útferð hættir ekki innan fárra daga, ef verkirnir aukast eða ef það fer að koma vond lykt af útferðinni þá skaltu hafa samband við lækni.
Kveðja,
Jóna Valdís
Lyfjafræðingur