Spurning

Að taka inn lyf > Getnaðarvarnir > Spurt og svarað > Trinovum 28 og blæðingar
Trinovum 28 og blæðingar
Spurning barst þann 27.8.2007
Spurning:

Var að byrja á trinovum 28 pillunni fyrir um það bil 3 vikum. síðan byrjuðu þessar svokölluðu milliblæðingar held ég en þær eru núna búnar að standa í rúma viku og þetta er þannig að þær byrja á morgnana og eru eiginlega bara yfir daginn! er þetta eðlilegt? ætti ég að skipta um pillu? og eru líkurnar á þungun þá búnar að vera meiri í þennan tíma???
ef ég er ekki búin með pilluspjaldið en blæðingar byrja, á þá að byrja á nýju eða klára þetta?

Svar:

Þú skalt klára spjaldið og byrja svo strax á öðru ef þú ert á Trinovum 28. Það er eðlilegt að byrja á túr um 3 vikum eftir að byrjað er á þessari pillu.

Notkun Trinovum 28:
Fyrsta taflan er tekin á fyrsta degi tíðablæðinga og síðan er ein tafla tekin daglega, helst alltaf sama tíma dags. Fyrst eru hvítu töflurnar teknar, síðan þær ljósferskjulituðu, síðan þær ferskjulituðu og að lokum grænu töflurnar. Ef 28 daga skammtarnir eru notaðir þá er ekkert töfluhlé gert heldur eru grænu töflurnar teknar síðustu 7 dagana og á þeim tíma verða tíðablæðingar. Þegar spjaldið klárað er strax byrjað á næsta spjaldi daginn eftir.

Hvenær veitir Trinovum öryggi: Örugg getnaðarvörn er strax frá fyrsta degi ef töflurnar eru teknar samkvæmt leiðbeiningum.
Líkurnar á þungun eru því afar litlar hafirðu tekið pilluna alla dagana og alltaf á svipuðum tíma dagsins.
Kveðja,

Jóna Valdís
Lyfjafræðingur