Spurning barst þann 27.8.2007
Spurning:
Er óhætt að taka samfleytt tvo skammta af Diane Mite til þess að fresta blæðingum þangað til eftir seinna spjaldið?
Ég fór á Diane Mite fyrir um 3 árum, læknirinn skrifaði upp á hana sem getnaðarvörn en auk þess átti hún að draga úr miklum hárvexti. Er ástæða fyrir mig til þess að skipta um getnaðarvörn (hér á vefnum er mikið talað um að einungis eigi að vera á Diane Mite í stuttan tíma)?
Svar:
Svarið við fyrri spurningunni er "já". Þú mátt taka 2 spjöld samfleytt til að fresta blæðingum.
Konur framleiða karlhormón í litlu magni en verði framleiðsla þeirra of mikil getur það komið fram á ýmsan hátt, t.d. með andlitshárum eða karlmannsskalla. Diane mite töflurnar innihalda tvö mismunandi hormón. Þau virka sem getnaðarvörn og minnka einnig karlhormón í blóðrás en aðrar getnaðarvarnartöflur hafa ekki þessi áhrif á karlhormón.
Það á því einungis að nota Diane mite í þeim tilvikum þar sem þörf er á bælingu karlhormóna en ekki sem getnaðarvörn einungis. Ef einkenni þín eru horfin þá mæli ég með því að þú skiptir yfir í aðra tegund getnaðarvarnartaflna í samráði við lækninn þinn. Ef einkennin koma fram á ný má skipta aftur yfir í Diane mite.
Kveðja,
Jóna Valdís
Lyfjafræðingur