Spurning

Fræðsla og forvarnir > Kynsjúkdómar > Spurt og svarað > Má nota Zovir á herpessýkingu á kynfærum?
Má nota Zovir á herpessýkingu á kynfærum?
Spurning barst þann 27.8.2007
Spurning:

óheppin spurði:
Herpes á kynfærum. Má nota zovir á kynfæri þegar maður fær herpessýkingu þar?

Svar:


Zovir krem er notað á herpessýkingar á vörum (frunsur) og kynfærum. Zovir kremið sem er selt án lyfseðils er ætlað til meðhöndlunar á frunsum. Það er ekki ráðlegt að nota Zovir á útbrot á kynfærum án samráðs við lækni til að staðfesta að um herpessýkingu sé að ræða.

Það er rétt að taka það fram að herpesveiran er smitandi meðan sár af völdum hennar er til staðar, þó byrjað sé að nota lyfið.

Kveðja, Ýmir Vésteinsson lyfjafræðingur