Spurning barst þann 27.8.2007
Spurning:
Er hægt að fá án lyfseðils, lyf eins og podophyllíni við kynfæravörtum?? En er hægt að hringja og fá lyfseðil sendan í apótek? Birgir
Svar:
Sæll Birgir
Lyfið Condyline, sem inniheldur virka efnið pódófýllótoxín og er notað við kynfæravörtum fæst eingöngu gegn lyfseðli. Það fást engin lyf án lyfseðils við þessum kvilla. Þú þarft sem sagt að hafa samband við lækni og að öllum líkindum þarft þú að hitta hann í eigin persónu. Upplýsingar um hvert hægt er að leita er að finna hér.
Kveðja, Heimir Þór Andrason lyfjafræðingur