Spurning barst þann 27.8.2007
Spurning:
Ég er búsett í Usa og þurfti að fara til kvensjúkdómalæknis vegna sviða í leggöngum. Hann sagði mér að ég væri með gardinella bakteríu. Geturu sagt mér einhvað um þessa bakteríu? iris82
Svar:
Gardnerella vaginalis er baktería sem getur valdið sýkingu í leggöngum. Bakterían berst gjarnan með kynmökum milli karla og kvenna, og mætti því flokkast sem kynsjúkdómur. Helsta einkenni sýkingarinnar er útferð og óþægindi í leggöngum.
Hægt er að meðhöndla sýkinguna með sýklalyfjum, t.d. metrónídazól.
Kveðja, Ýmir Vésteinsson lyfjafræðingur