Spurning

Fræðsla og forvarnir > Reykingar > Spurt og svarað > Eru til lyf sem hjálpar manni að hætta að reykja?
Eru til lyf sem hjálpar manni að hætta að reykja?
Spurning barst þann 27.8.2007
Spurning:

Ég ætla mér að hætta að reykja en ég er rosalega skapstór maður og ég veit að þetta á eftir að fara í skapið á mér.

Ég hef heyrt um einhver lyf sem hjálpa manni með það að hætta að reykja.Hvernig getur maður fengið það.Ef ég skildi fara á plásturinn mundi eg þá finna fyrir skapinu og verða leiðinlegur.

Svar:

Sæll

Rétt er að slík lyf eru til. Fyrst má telja lyf sem flestir þekkja eða nikótínlyf s.s. tyggjó, plástur, nefsprey ofl sem gefa frá sér nikótín og hjálpa fólki til þess að hætta að reykja með því að slá á löngun í nikótín. Mjög mikilvægt er að áður en maður byrjar að nota slík lyf að fá góðar leiðbeiningar um notkun og val á þeim. Þessi lyf er hægt að kaupa án lyfseðils í öllum verslunum Lyfju. Fáðu ráðgjöf frá lyfjafræðingi áður en þú ákveður hvaða nikótínlyf þú ætlar að nota. Mjög misjafnt er hvaða nikótínlyf hentar hverjum, hver reykingamaður hefur sína siði. Til er próf (Falström prófið) sem hjálpar við val á hvaða nikótínlyf hentar. Dæmi: Siggi og Jón eru tvíburar, þeir reykja báðir 1 pakka á dag, en venjur þeirra eru mismunandi. Siggi er sendibílsstjóri og getur reykt í bílnum jafnt og þétt yfir daginn eins og hann vill. Jón vinnur á vinnustað þar sem reykingar eru bannaðar, hann reykir þá bara í hádeginu og á kvöldin þegar hann kemur heim. Jón reykir því mjög lítið yfir daginn en mökkar svo á kvöldin. Fyrir Sigga sendibílsstjóra mun nikótínplástur líklegast henta vel því hann gefur af sér nikótín jafnt og þétt yfir daginn og líkir vel eftir reykingavenjum hans. Plásturinn hentar líklega ekki Jóni því þegar hann kæmi heim um kvöldið vantar eitthvað!!!. Fyrir hann væri nefsprey líklegast best.

Nikótínlyf hafa löngu sannað gildi sitt, og hjálpa fólki klárlega að hætta að reykja. Þau hafa þó verið gagnrýnd fyrir það að þau innihalda nikótín og fyrir marga hefur verið erfitt að hætta að nota þau. Það er þó klárlega heilsusamlegra að tyggja nikótíntyggjó heldur en að reykja. Og mikið af þessari gagnrýni byggir á vanþekkingu og ekki síst vegna þess að þessi lyf eru oft ekki notið rétt. Því er mikilvægt að fara eftir þeim leiðbeiningum sem framleiðendur setja en miðað við þær á enginn á að tyggja nikótíntyggjó lengur en 6 mánuði og hætta svo. Rétt notkun er að minnka smá saman notkun og hætta svo alveg. Ég veit þó dæmi þess að fólk hefur notað þessi lyf árum saman. Til eru langtímaransóknir sem sýna að slíkt er talið óhætt. Það fólk er þó klárlega enn háð nikótíni. Kosturinn er þó að það fólk er ekki að fá þau skaðlegu efni sem fylgja reykingum. Nikótín er ekki krabbameinsvaldur þó það sé klárlega vanabindandi.

Þetta lyf sem þú nefnir er Zyban en það er lyfseðilsskylt lyf sem þú getur einungis nálgast með ávísun frá lækni. Þetta lyf inniheldur ekki níkótín heldur er þetta lyf sem slær á löngun og fráhvarfseinkenni níkótíns, eða nákvæmlega þá hluti sem þú ert að hafa áhyggjur af við það að hætta að reykja. Þetta lyf hefur hjálpað mjög mörgum að hætta að reykja. Hafðu samráð við lækni varðandi það lyf.

Fróðleikur um Zyban
Út úr kófinu fróðleikur til að hætta að reykja

Kveðja Friðþjófur Már Sigurðsson lyfjafræðingur Lyfju Kringlunni