Spurning

Fræðsla og forvarnir > Reykingar > Spurt og svarað > Hve lengi er nikótín í líkamanum?
Hve lengi er nikótín í líkamanum?
Spurning barst þann 27.8.2007
Spurning:

Sæll, Hversu lengi tekur það líkamann að losa sig við nikótínið ? Ég hætti að reykja fyrir 11 dögum, reykti 1 pakka á dag, BMI er 20,1 (ef að það skiptir einhverju máli) og ég nota ekkert lyf til að draga úr fráhvörfum. Hversu lengi á ég eftir að finna fyrir líkamlegri löngun í sígarettu ? (félagslegi þátturinn er svo aftur á móti sálfræðilegur). Takk fyrir, K 1975

Svar:

Sæl

Nikótín hefur helmingunartímann 1-2 klukkustundir í líkamanum. Það þýðir að þú ert 1-2 klukkustundir að losa þig við helminginn af því nikótíni sem fékkst úr síðustu sígarettunni sem þú reyktir. Líkaminn er ekki fljótur að losa sig við nikótín eftir að einstaklingur hættir að reykja. Við eru að tala um tímabil í klukkustundum upp í daga, ef allt er eðlilegt. Það er einmitt þessi stutti útskilnaðartími sem geri nikótín svona hentugt í tóbak, fyrir tóbaksframleiðendur, því það er stuttur tími þangað til að einstaklingur þarf annan skammt.

Fráhvarfseinkenni nikótíns eru m.a. kvíði, eirðarleysi, hjartsláttur, aukin matarlyst ofl. Þau koma fram nokkrum klukkustundum eftir að neyslu efnisins er hætt, ná hámarki eftir nokkra daga og vara í nokkrar vikur. Lengd tímans er háð hversu mikil neyslan var.

Kveðja, Friðþjófur Már Sigurðsson lyfjafræðingur