Spurning

Fræðsla og forvarnir > Reykingar > Spurt og svarað > Hvað er Zyban tekið lengi?
Hvað er Zyban tekið lengi?
Spurning barst þann 27.8.2007
Spurning:

Er lyfið Zyban (reykingalyfið) tekið í eina viku eða meira? Er fast magn hjá öllum eða mismunandi? Veistu hvað lyfið kostar almennt? Við hjónin ætlum að hætta að reykja, en ég las hjá ykkur að körlum gengi betur með þetta lyf. Ráðleggið þið annað frekar fyrir konur? Er lyfið tekið eitt og sér eða má nota tyggjó eða annað nikotin lyf? Matta

Svar:

Lyfið Zyban er tekið í allt að 7 vikur, en sá tími hefur gefið besta raun. Nýlega er búið að endurskoða meðferðina en hún er alltaf í stöðugri þróun og endurskoðun. Í dag er mælt með því að taka 1 töflu (150 mg) á dag í 6 daga og auka í 1 töflu 2svar á dag á 7. degi, með 8 klukkustunda millibili, sami skammtur fyrir alla. Það er þó læknis að ákvarða skammta hverju sinni. Lyfið er tekið í viku áður en ráðlegt er að hætta að reykja. Þetta er vegna þess að beðið er í þessa viku með að lyfið nái fullri verkun.

Árangur lyfsins fyrir konur er ekki það mikið verri heldur en fyrir karla þ.a. þetta er eflaust besta leiðin til hjálpar sem hægt er að fá í dag. Best væri náttúrulega að hætta að reykja án hjálpar, en það er víst ekki auðvelt fyrir alla.

Ekki er mælt með því að verið sé að nota nikótín vörur með lyfinu. Stór hluti í því að reykja er jú þörf fyrir það "blessaða" efni sem ég vil skilgreina sem fíkniefni, en enginn sem eitthvað hefur um það að segja virðist vera sammála mér um það.

Hvað varðar verð á lyfinu þá er það eitthvað ódýrara að taka lyfið í 7 vikur heldur en að reykja einn pakka á dag í 7 vikur. Nákvæmt verð getur þú fengið uppgefið hjá apótekum og ég hvet þig til þess að gera verðkönnun hvar þú færð það ódýrast. Ég mæli með Lyfju eða Apótekinu.

Kveðja, Friðþjófur Már Sigurðsson lyfjafræðingur