Spurning

Fræðsla og forvarnir > Reykingar > Spurt og svarað > Er reykingapillan bara góð fyrir karla?
Er reykingapillan bara góð fyrir karla?
Spurning barst þann 27.8.2007
Spurning:

Er einhver kynjamunur á að nota reykingalyfið Zyban? muchisimo

Svar:

Í rannsóknum hefur komið fram að óháð öllum öðrum þáttum gengur fólki betur að hætta reykingum með notkun Zyban en án þess. Þetta á bæði við strax eftir meðferðina (7 vikur) og 1 ári eftir að meðferð lýkur.

Ein rannsókn hefur þó verið framkvæmd til að finna þá sem eru líklegastir til að hafa gagn af lyfinu, t.d. varðandi kyn, aldur, hversu mikið þeir reykja og hversu lengi þeir hafa hætt að reykja eftir fyrri tilraunir. Niðurstöður þessarar rannsóknar voru að þeir þættir sem höfðu mest áhrif á árangur meðferðarinnar voru stærð skammta af lyfinu, fjöldi sígaretta á dag, hversu lengi fyrri reykbindindi höfðu varað og kyn.

Þannig var bestur árangur hjá þeim sem fengu stærri skammta af lyfinu (300 mg á dag - minnst voru gefin 100 mg á dag), höfðu reykt færri sígarettur á dag (19 eða færri), höfðu ekki reynt að hætta að reykja áður eða hafði tekist að hætta í langan tíma (meira en 1 mánuð), og voru karlmenn.

Þarna eru aðeins taldir þeir þættir þar sem tölfræðilega marktækur munur var á samanburðarhópunum. Þessar niðurstöður ber þó alls ekki að túlka sem svo að lyfið gagnist aðeins karlmönnum sem reykja lítið og hefur tekist að hætta í ár í fyrri tilraunum. Notkun lyfsins er ennþá með betri leiðum til að hætta að reykja þó viðkomandi falli ekki endilega í þann hóp sem er nefndur hér að ofan. Rannsóknir á borð við þessa geta þó hjálpað við að gera meðferðina markvissari.

Meira í þessum dúr í eldra svari Friðþjófs kollega: Hvað er Zyban tekið lengi?

Kveðja, Ýmir Vésteinsson lyfjafræðingur