Spurning

Fræðsla og forvarnir > Reykingar > Spurt og svarað > Er hægt að nota Zyban og Risperdal til að hætta að reykja?
Er hægt að nota Zyban og Risperdal til að hætta að reykja?
Spurning barst þann 27.8.2007
Spurning:

Er hægt að nota Zyban og Risperdal til að hætta að reykja? DH

Svar:


Zyban er skráð sem lyf til að hjálpa fólki að hætta að reykja, en Risperdal er sefandi geðlyf.

Zyban hægir á niðurbroti Risperdal í lifur. Það má þó taka lyfin saman ef tekið er tillit til þessarar milliverkunar og skammtar af Risperdal eru minnkaðir.

Kveðja, Ýmir Vésteinsson lyfjafræðingur