Er hægt að nota Zyban og Risperdal til að hætta að reykja?

Spurning barst þann 27.8.2007
Spurning:

Er hægt að nota Zyban og Risperdal til að hætta að reykja? DH

Svar:


Zyban er skráð sem lyf til að hjálpa fólki að hætta að reykja, en Risperdal er sefandi geðlyf.

Zyban hægir á niðurbroti Risperdal í lifur. Það má þó taka lyfin saman ef tekið er tillit til þessarar milliverkunar og skammtar af Risperdal eru minnkaðir.

Kveðja, Ýmir Vésteinsson lyfjafræðingur

© Copyright 2002-2012, Lyfja hf. Allur réttur áskilinn.