Spurning

Fræðsla og forvarnir > Reykingar > Spurt og svarað > Má nota nikótínlyf á meðgöngu?
Má nota nikótínlyf á meðgöngu?
Spurning barst þann 27.8.2007
Spurning:

Er óhætt að nota Nicotin plástur o.þ.h sér til hjálpar við að hætta að reykja á meðgöngu. BH

Svar:

Nikótín getur haft áhrif á fóstur. Öryggi nikótínlyfja á meðgöngu hafa ekki verið staðfest, en skaðleg áhrif reykinga á fóstur eru vel þekkt. Best væri ef þú kæmist af með að hætta að reykja án þess að nota nikótínlyf, en það má þó reikna með því að lyfin séu mun skárri en reykingar á meðgöngu.

Ef þú treystir þér ekki til að hætta að reykja án þess að nota nikótínlyf er best fyrir þig að taka ákvörðun í samráði við sérfræðing í fæðinga- og kvensjúkdómafræði.

Kveðja, Ýmir Vésteinsson lyfjafræðingur