Maki minn tekur Decutan - má ég verða ófrísk?

Spurning barst þann 20.10.2008
Spurning:

Sæl/sæll. Mig vantar að vita hvort það sé óhætt að verða ófrísk þegar maki minn er á decutan ?? ég veit að konur mega ekki taka það inn á meðgöngu.

Svar:

Það er allt í lagi að þú verðir ófrísk þó svo maki þinn sé á Decutan. Decutan hefur bara vanskapandi áhrif á fóstur þegar konan tekur það sjálf inn. Decutan hefur ekki áhrif á fjölda, hreyfanleika né form sæðis og kemur ekki í veg fyrir myndun og þroska fósturvísis þegar karlmaðurinn hefur tekið inn ísótretínóín í þeim skömmtum sem mælt er með.

Kveðja,

Jóna Valdís, lyfjafræðingur

© Copyright 2002-2012, Lyfja hf. Allur réttur áskilinn.