Spurning barst þann 23.12.2008
Spurning:
Eru einhverjar sannanir fyrir því að töflur með mjólkurþistli séu gagnlegar fyrir þá sem hafa skerta lifrarstarfssemi?
Svar:
Gagnsemi mjólkurþistils fyrir lifrina er nokkuð umdeild. Flest bendir til þess að innihaldsefni þessarar plöntu geri lifrinni gott en ekki liggja ennþá fyrir neinar haldbærar rannsóknir sem styðja þær kenningar eða sanna þær til fullnustu.
Klínískar prófanir hafa þó sýnt fram á að innihaldsefni mjólkurþistils (sylimarin) er verndandi fyrir lifur þegar um er að ræða lifrarbólgu, skorpulifur, mikla lyfjanotkun sem veldur álagi á lifur eða alkóhólisma. Sylimarin er samheiti yfir fjögur virk efni: sylibinin (er í mestu magni), silidianin, sylicristin og sylimarin. Efnin tilheyra öll flokki svokallaðra flavónóíða en það eru efni innan plönturíkisins sem mörg hver hafa þekkta lyfjafræðilega verkun.
Sylimarin er talið virka á fjóra mismunandi vegu í lifrinni:
1. Efnið er andoxunarefni (gleypir frjálsar rafeindir) og heldur efni sem kallast glutathion í jafnvægi.
2. Efnið gerir frumuhimnu og gegndræpi lifrarfruma stöðugri.
3. Efnið hraðar nýmyndun lifrarfruma.
4. Efnið hægir á myndun kollagenþráða sem myndast við skorpulifur.
Þú getur lesið meira um þetta hér (á ensku).
Sumir vilja meina að mjólkurþistill sé fyrirbyggjandi við krabbameini en ég læt það liggja á milli hluta.
Sylimarin er einnig virkt gegn eitrun vegna hattasveppa eða amanitaeitrun (sjaldgæft hérlendis) og er markaðssett sums staðar erlendis sem móteitur (lyf) gegn slíku.
Aukaverkanir eða eitrunaráhrif vegna mjólkurþistils í hefðbundnum skömmtum eru ekki þekkt. Ég myndi því ætla að fyrir þá sem vilja hugsa vel um lifrina sína að þá sé mjólkurþistill góður kostur. Ég tek það samt fram að hann kemur aldrei í staðinn fyrir lyfjameðferð eða aðra meðferð ef um sjúklegt ástand lifrar er að ræða. Þá er best að leita ráða hjá lækni.
Kveðja,
Jóna Valdís, lyfjafræðingur