Spurning

Fræðsla og forvarnir > Ferðir og ferðalög > Spurt og svarað > Hvaða malaríutöflur er best að nota?
Hvaða malaríutöflur er best að nota?
Spurning barst þann 13.1.2009
Spurning:

Hæ, mig langaði að forvitnast aðeins í sambandi við malaríutöflur. Ég er að fara út til afríku bráðum og er að spá hvaða töflur er best að taka. Var bent á þrjár tegundir, en læknirinn vildi að ég færi á doxýtab en þar sem það er ekki eiginlegt malaríulyf var ég að spá hvort það sé alveg 100% safe. Svo líka í sambandi við sólina, því doxýtab gerir húðina næmari fyrir sólarljósinu, venst það eða? Takk.

Svar:

Ýmsir meðferðarmöguleikar gegn malaríu eru fyrir hendi en ónæmi Plasmodium-frumdýra gegn lyfjum er útbreitt vandamál og mismunandi milli landssvæða. Á ferðalögum til svæða þar sem malaría er landlæg ber að gefa lyf í forvarnarskyni. Úrvalið af lyfjum er mikið og því er mikilvægt að hafa góða þekkingu á ónæmi frumdýranna gegn mismunandi lyfjum ásamt útbreiðslu malaríu á því landssvæði sem ferðast skal til. 

Helstu lyf sem notuð eru heita Klorokinfosfat, Plaquenil, Malarone, Lariam og Doxýtab. Doxýtab er breiðvirkt sýklalyf og virkar líka á malaríusníkilinn. Ráðlagður skammtur er 100 mg á dag (1 tafla) alla ferðina og í 4 vikur eftir að heim er komið. Það er ekkert lyfjanna "100% safe" en Doxytab er ekki verra en hin lyfin. T.d. er talað um að í dag sé aðeins hægt að nota klórókín í löndum Mið-Ameríku því sníkillinn hefur þróað með sér ónæmi annars staðar.

Varðandi aukna hættu á ljósnæmi þá þarf að gæta varúðar í sólinni og vera aðeins meðvitaðri heldur en ella ef þú ert að taka Doxytab. Það eru ekki allir sem verða fyrir þessu heldur er þetta sjaldgæf aukaverkun. Ég mæli bara með góðri sólarvörn og almennri skynsemi :)

Doxýtab heitir reyndar núna Doxylin í apótekum (vegna nafnabreytinga frá framleiðanda).

Ég rakst á vefsíðu sem er góð til upplýsinga varðandi bólusetningar, malaríu og landlæga sjúkdóma víðs vegar um heiminn ef þú lest dönsku www.vaccination.dk.

Svo er Landlæknisembættið líka með upplýsingar á sinni heimasíðu.

Góða ferð,
Jóna Valdís, lyfjafræðingur