Spurning

Fræðsla og forvarnir > Ferðir og ferðalög > Spurt og svarað > Á fiskitogara við strendur Afríku...
Á fiskitogara við strendur Afríku...
Spurning barst þann 17.1.2009
Spurning:

Ég er á fiskitogara við strendur Afríku. Áður en að ég fór var ég í sprautaður við taugaveiklun, lifrabólgu og fékk lyf við malaríu. Eftir að ég fór að vinna fór ég að finna fyrir verkjum í vinstri öxl og það var nú bara einhver vöðvabólga held ég en fyrir ca 1 1/2 viku vaknaði ég dofinn í þumalputta, vísifingri og löngutöng aðeins á hægri hendi. Þegar ég kreppti saman olgnbogan í fyrstu varð dofinn meiri, en nú er hann bara stöðugur allann sólahringinn. Ég finn ekki fyrir neinni bólgu neinstaðar og ekkert

Svar:

Það er náttúrlega ómögulegt fyrir mig að greina þetta af einhverju viti þar sem þetta liggur að nokkru leyti fyrir utan mína sérþekkingu. Mér finnst ólíklegt að þú sért að upplifa aukaverkun af klórókíníni og dettur helst í hug að þú sért með klemmda taug. Þú lýsir þessu þannig, dofi í þrem samliggjandi fingrum og straumur fram eftir handleggnum sem byrjar eftir að þú byrjar í nýrri vinnu. Er mögulegt að þú sért að vinna í einhverri nýrri stellingu sem hefur áhrif á háls eða hrygginn þar í kring? Oft er það vöðvabólga sem veldur þessu og hún getur verið lúmsk og ekki endilega augljós. Taugar geta líka klemmst af öðrum orsökum. Spáðu í það hvort vinnustellingin getur verið að hafa áhrif, t.d. langvarandi stöður eða síendurteknar hreyfingar og hvort þú getir brotið þetta eitthvað upp. Bólgueyðandi verkjalyf gætu hjálpað ef þetta reynist vera vöðvabólgutengd. Töflur sem innihalda íbúprófen, naproxen eða díklófenak eiga að vera um borð í skipinu.

Best væri að láta lækni líta á þetta næst þegar þú kemur í land.

Kveðja,
Jóna Valdís, lyfjafræðingur