Spurning barst þann 28.4.2009
Spurning:
Alltaf þegar konan mín stendur í þrifum þá eru ákveðin sápuefni sem valda strax hjá mér nefstíflum, bólgu í slímhúð, þurrki í ennisholum og verkjum út í gagnaugu. Einnig skeður það sama með lyktsterk þvottaefni, mýkingarefni og lyktarflöskur sem settar eru í salernisskálar. Ég fæ sviða undir augu og verki í kinnbein. Þetta verður alltaf verra og verra og ég lengur að jafna mig. Einnig virðist lyktarskynið margfaldast. Er ég eitthvað öðruvísi eða eru fleiri með þennan kvilla sem ég vil kalla ofnæmi?
Svar:
Einkennin sem þú lýsir geta vel átt við ofnæmi. Það er vel þekkt að fólk hafi ofnæmi fyrir ýmis konar sápuefnum, ilmefnum, þvottaefnum og mýkingarefnum og full ástæða til að taka slíkt alvarlega. Best væri ef þú gætir komist að því hvað það er sem er að trufla þig. Ef þú lest innihaldslýsingar á umbúðum efnanna sem verið er að nota má vel vera að þau innihaldi öll eitthvað sameiginlegt efni sem gæti verið að valda þér vandræðum. Það getur einnig verið að það séu fleiri en eitt efni sem framkalli hjá þér þessi viðbrögð. Það getur verið mjög erfitt að finna ofnæmisvald og í sumum tilfellum kemst fólk aldrei almennilega að því hver ofnæmisvaldurinn er.
Þú ættir að reyna að forðast alla vöru sem þú finnur óþægindi af. Það má skipta út lyktsterkum sápum, þvottaefni og mýkingarefni fyrir ilmefnalausa og ofnæmisprófaða vöru, t.d. Neutral. Svo getur verið gott að nota lífræn hreinsiefni til hreingerninga í staðinn fyrir hefðbundin sterk efni.
Endilega reyndu að fá heimilisfólkið til að prófa þetta í einhvern tíma og vittu hvort þú lagast ekki.
Kveðja,
Jóna Valdís, lyfjafræðingur