Skoðanakönnun

Eru smokkar of dýrir?




Kjósa
Þú ert hér: Lyf > Lyf > Spurt og svarað > Reductil með Efexor Depot?
Reductil með Efexor Depot?
Spurning barst þann 31.7.2009
Spurning:

Ég var að fá lyfið Reductil og langar að vita hvort það geti haft áhrif á Efexor Depot sem ég tek daglega 75 mgr. af.
Ef svo er, hvaða áhrif eru það?

Svar:


Ekki er talið æskilegt að taka Reductil og Efexor saman þar sem það getur valdið svokölluðu serótóninheilkenni sem getur verið lífshættulegt ástand. Helstu einkenni serótónínheilkenna eru ofskynjanir, sljóleiki, hraður hjartsláttur, vöðvakippir, hraðar augnhreyfingar, ógleði, uppköst, niðurgangur, dá og margt fleira.

Myndi ég því ráðleggja þér að tala við lækninn þinn áður en þú byrjar að taka Reductil inn.

Kveðja,
Guðrún Björg, lyfjafræðingur


Greinar

Hvað er frjókornaofnæmi?

Frjókornaofnæmi er eitt algengasta ofnæmið sem kemur fram í nefi og augum. Ástæðan er ofnæmi fyrir grasi, birki eða súrum þ.e. frjókornum frá gróðri. Einkennin koma yfirleitt fram á sama tíma á hverju ári og sumum reynist erfitt að greina milli svokallaðs sumarkvefs og frjóofnæmis. Margir þjást af í...

Meira

Spurt og svarað

Sund og sveppasýking

Reglulegt sund á nú að vera í lagi þegar kemur að sveppasýkingu í leggöngum. Það sem helst hefur áhrif og veldur því að jafnvægi í bakteríuflóru legganganna getur raskast er raki og hiti. Að liggja löngum stundum í heita pottinum er þess vegna ekki æskilegt og svo er nauðsynlegt að þurrka sér vel á ...

Meira