Reductil með Efexor Depot?

Spurning barst þann 31.7.2009
Spurning:

Ég var að fá lyfið Reductil og langar að vita hvort það geti haft áhrif á Efexor Depot sem ég tek daglega 75 mgr. af.
Ef svo er, hvaða áhrif eru það?

Svar:


Ekki er talið æskilegt að taka Reductil og Efexor saman þar sem það getur valdið svokölluðu serótóninheilkenni sem getur verið lífshættulegt ástand. Helstu einkenni serótónínheilkenna eru ofskynjanir, sljóleiki, hraður hjartsláttur, vöðvakippir, hraðar augnhreyfingar, ógleði, uppköst, niðurgangur, dá og margt fleira.

Myndi ég því ráðleggja þér að tala við lækninn þinn áður en þú byrjar að taka Reductil inn.

Kveðja,
Guðrún Björg, lyfjafræðingur


© Copyright 2002-2012, Lyfja hf. Allur réttur áskilinn.