Spurning barst þann 3.8.2009
Spurning:
Nú er maður í svakalegu æfingaprógrammi og er að éta mikið þess vegna. Það sem ég hegg þó eftir er mikill vindgangur og finnst vera e-r tregða með hægðir. E-ð sem þú ráðleggur til að vindgangurinn hætti og hægðirnar verði reglulegri? Þ.e. e-r sérstök fæða eða lyf?
Svar:
Það má vera að þú sért ekki að drekka nógu mikið af vatni og sért ekki að borða nægilega mikið af trefjum. Einnig vill það gerast ef menn eru að borða of próteinríkafæðu að menn fái hægðatregðu. Þú getur prófað til þess að koma þessu aftur í lag að taka inn trefjar sem heita Husk og fást í næsta apóteki. Einnig getur þú prófað að taka inn hægðarlyf sem heitir Sorbitól en það bindur vatnið í hægðunum sem leiðir til þess að hægðirnar verða mýkri.
Kveðja,
Guðrún Björk, lyfjafræðingur