Skoðanakönnun

Eru smokkar of dýrir?




Kjósa
Þú ert hér: Lyf > Dýralyf > Spurt og svarað > Ormalyf fyrir hunda og ketti
Ormalyf fyrir hunda og ketti
Spurning barst þann 5.8.2009
Spurning:

Er með hunda og ketti, hver er munurinn á ormalyfjunum : Panacure-vet og Zantel ?

Svar:

Panacur inniheldur virka innihaldsefnið fenbendazól(250mg) en Zantel inniheldur tvö virk innihaldsefni fenbendazól (500mg) og prazikvantel (50mg). Bæði þessi lyf eru breiðvirk ormalyf gegn þráð- og bandormum en Zantel virkar þó á fleiri tegundir af bandormum.
Panacur þarf að gefa 1 töflu (250mg) á hver 5 kg líkamþunga og gefa þarf lyfið 3 daga í röð.  Með Zantel þarf bara að gefa 1 töflu á hver 10 kg og það bara í einum skammti.
Zantel má ekki gefa kettlingum sem ekki eru orðnir 8 vikna gamlir og ekki má gefa kettlingafullum læðum lyfið.  það skal þó alltaf tala fyrst við dýralækni ef gefa þarf hvolpafullum hundum eða kettlingafullum læðum ormalyf.

Kveðja,
Guðrún Björg, lyfjafræðingur

Greinar

10 ábendingar varðandi neglur og handhirðu

1. Reyndu að komast hjá því að nota lakkeyðir með acentoni í, það þurrkar upp neglurnar. Notaðu frekar lakkeyðir sem er án acentons og er með olíum í. 2. Notaðu handáburð eftir handþvotti. Þannig mettast hendurnar jafnt og þétt af raka. 3. Notið gúmmíhanska þegar þið vaskið upp, þá getið þið komið í...

Meira

Spurt og svarað

Trinovum 28 og blæðingar

Þú skalt klára spjaldið og byrja svo strax á öðru ef þú ert á Trinovum 28. Það er eðlilegt að byrja á túr um 3 vikum eftir að byrjað er á þessari pillu. Notkun Trinovum 28: Fyrsta taflan er tekin á fyrsta degi tíðablæðinga og síðan er ein tafla tekin daglega, helst alltaf sama tíma dags. Fyrst eru h...

Meira