Skoðanakönnun

Eru smokkar of dýrir?




Kjósa
Þú ert hér: Lyf > Lyf > Spurt og svarað > Aukaverkanir af Cipralex?
Aukaverkanir af Cipralex?
Spurning barst þann 19.8.2009
Spurning:

Fyrir 3 dögum byrjaði ég að taka inn lyfið Cipralex (10 mg). Ég fæ alveg svakaleg svimaköst af lyfinu, einnig á ég svakalega erfitt með að sofna þegar ég er þreyttur. Kannski 3 klst á nóttu eftir að hafa verið vakandi í 22 - 28 klst. Og þegar ég vakna þá finn ég ekki fyrir þreytu. Er þetta eðililegar aukaverkanir?

Svar:

Já, þetta eru algengar aukaverkanir af þessu lyfi, bæði svimaköstin sem og þetta svefnleysi en vanalega ganga þessar aukaverkanir yfir á nokkrum vikum.  Ef þessi svimaköst fara aftur á móti að versna hjá þér þá myndi ég ráðleggja þér að ræða þetta við þinn lækni.

Kveðja,
Guðrún Björg, lyfjafræðingur

Greinar

Ráðlagðir dagskammtar

Til að leiðbeina fólki hve mikið það á að taka inn af vítamínum og steinefnum hafa verið gefnir út ráðlagðir dagskammtar (skammstafað RDS), en það er magn nauðsynlegra næringarefna sem á að fullnægja næringarþörf þorra heilbrigðs fólks að mati Manneldisráðs Íslands.Þarfir einstaklinga eru mismunandi...

Meira

Spurt og svarað

Seroxat og áfengi

SællAlmennt er ekki æskilegt að neyta áfengis þegar maður er að taka inn lyf. Áhrifin eru skiljanlega mismunandi eftir því hvaða lyf um er að ræða. Stundum getur það verið beinlínis hættulegt heilsu fólks, stundum getur það getur minnkað áhrif lyfja og þannig haft áhrif á lyfjameðferðina og í enn öð...

Meira