Aukaverkanir af Cipralex?

Spurning barst þann 19.8.2009
Spurning:

Fyrir 3 dögum byrjaði ég að taka inn lyfið Cipralex (10 mg). Ég fæ alveg svakaleg svimaköst af lyfinu, einnig á ég svakalega erfitt með að sofna þegar ég er þreyttur. Kannski 3 klst á nóttu eftir að hafa verið vakandi í 22 - 28 klst. Og þegar ég vakna þá finn ég ekki fyrir þreytu. Er þetta eðililegar aukaverkanir?

Svar:

Já, þetta eru algengar aukaverkanir af þessu lyfi, bæði svimaköstin sem og þetta svefnleysi en vanalega ganga þessar aukaverkanir yfir á nokkrum vikum.  Ef þessi svimaköst fara aftur á móti að versna hjá þér þá myndi ég ráðleggja þér að ræða þetta við þinn lækni.

Kveðja,
Guðrún Björg, lyfjafræðingur

© Copyright 2002-2012, Lyfja hf. Allur réttur áskilinn.