Skoðanakönnun

Eru smokkar of dýrir?




Kjósa
Þú ert hér: Lyf > Lyfjagjöf til barna > Spurt og svarað > Börn og Sorbitól
Börn og Sorbitól
Spurning barst þann 2.11.2009
Spurning:

Stelpan mín (2ja) á erfitt með að koma hægðum frá sér. Ég gef henni bara venjulegan mat, hafragraut, sveskjumauk, fisk og kjöt og ekki mikinn mjólkurmat. Ég hef prófað Sorbitol í 2 vikur og það virkaði svona líka vel. Þegar ég hætti að gefa henni það þá kom þetta kúkavesen strax aftur... hún vælir, þetta er erfitt og mér finnst eins og hún reyni að halda í sér. Stundum er þetta hart en ekki alltaf... Hvernig virkar Sorbitól fyrir börn, hvað má gefa það oft og lengi og hvað er til ráða?

Svar:

Sorbitól virkar þannig að það dregur vatn inn í þarmana. Rúmmál hægðanna eykst, þær verða linari og þarmahreyfingar aukast einnig. Allt þetta gerir það að verkum að það verður auðveldara að skila frá sér hægðum.

Ef hægðalyf, t.d. Sorbitól er notað í lengri tíma getur það haft áhrif á getu þarmanna til að starfa eðlilega. Þá verður líkaminn "vanur" því að fá hjálp. Stundum er þó nauðsynlegt að gefa hægðalyf lengur en 2-3 vikur í senn en þá ætti að gera það samkvæmt læknisráði.

Það er til annað lyf sem börnum er mjög oft gefið og heitir Miralax. Barnalæknar eru að nota það svolítið. Það virkar svipað og Sorbitól en er á duftformi, bragðlaust og má blanda út í hvað sem er. Þú þarft lyfseðil frá lækni fyrir því.

Oftast eru hægðavandamál hjá börnum tímabundin. Sumir segja jafnvel að það sé eðlilegt af og til. Það er mikilvægt að þið verðið ekki of stressaðar út af þessu því þá getur það haft áhrif á barnið, t.d. þannig að hún hugsi mikið um þetta eða fari að halda í sér. Stundum verða börn hvekkt og hætta að vilja nota koppinn eða klósettið. Það er því best að gera sem minnst úr þessu fyrir barnið þó svo vandamálið sé til staðar. Einnig getur skapast nokkurs konar vítahringur; ef það er erfitt að kúka og vont þá fer barnið að halda í sér til að forðast óþægindin sem leiðir til þess að vandamálið versnar.

Ég ráðlegg þér að halda að henni eins miklum vökva og þú getur. Mataræðið sem þú nefnir virðist vera fínt. Trefjaríkur matur og vökvi er mikilvægur. Sveskjusafi eða -mauk er mjög gott fyrir hægðirnar og gott að nota það á hverjum degi. Sorbitól má nota í stuttan tíma í einu eins og þú gerðir og þú mátt gjarnan prófa það aftur ef þér finnst hún vera slæm. Ef hins vegar allt fer í sama farið eftir að þú hættir að gefa Sorbitól þá ættirðu að panta tíma hjá lækni.

Hér eru tvær góðar vefsíður, reyndar á ensku, ef þú vilt fræðast frekar. Þar má einnig finna góð ráð:

www.familydoktor.org
www.pediatrics.about.com

Bestu kveðjur,
Jóna Valdís, lyfjafræðingur

Greinar

Drottningarhunang

Fræðiheiti Á ekki viðEnsk heiti Royal jelly, apilak, feng wang jiang, geleé royale, queen bee jellyEinkunn 4 = Rannsóknir benda til þess að staðhæfingar um áhrif þessa efnis eigi ekki við rök að styðjast, en það er einnig ólíklegt að efnið sé á nokkurn hátt skaðlegt.Hvað er drottningarhunang? Ungar...

Meira

Spurt og svarað

Má vera á Diane mite í langan tíma?

Svarið við fyrri spurningunni er "já". Þú mátt taka 2 spjöld samfleytt til að fresta blæðingum. Konur framleiða karlhormón í litlu magni en verði framleiðsla þeirra of mikil getur það komið fram á ýmsan hátt, t.d. með andlitshárum eða karlmannsskalla. Diane mite töflurnar innihalda tvö mismunandi ho...

Meira