Mæling á blóðsykri og blóðfitu Vissirðu að mælingar á blóðfitu, blóðþrýstingi og blóðsykri eru meginþættir í ráðgjöf þegar ráða á heilt um hjarta- og æðasjúkdóma?
Reglulegt eftirlit er afar mikilvægt hvað varðar þessa ofantalda þætti. Stundum er fólk í mörg ár með hækkaðan blóðþrýsting, of hátt kólesteról í blóði eða brenglaðan blóðsykur án þess að finna til nokkurra einkenna. Á þeim tíma geta engu að síður orðið umtalsverðar skemmdir í líkamanum áður en eitthvert þessa uppgötvast. Með reglulegu eftirliti aukast líkurnar á því að viðkomandi geti sjálfur gripið inn í á frumstigi sjúkdómsins með breyttu líferni sínu. Á efri stigum sjúkdómsins er líklegra að grípa verði til róttækari aðgerða. Að láta mæla sig reglulega þarf ekki að vera flókið í framkvæmd. Fólk sem stundar slíkt er meðvitað og ber ábyrgð á eigin heilsu.
Boðið er upp á eftirtaldar mælingar hjá Lyfju:
1. Blóðfita/kólesteról, blóðsykur, blóðþrýstingur, blóðrauði, beinþéttni og öndunarmæling -
5.490kr
2. Blóðfita/kólesteról, blóðsykur, blóðþrýstingur, blóðrauði og beinþéttni -
4.890kr
3. Blóðfita/kólesteról, blóðsykur, blóðþrýstingur og blóðrauði -
3.990kr
4. Blóðfita/kólesteról, blóðsykur og blóðþrýstingur -
3.490kr
Blóðþrýstingur (200 kr)
Beinþéttni (1090 kr)
Öndunarmælingar(1090 kr)
Blóðrauðamæling (580 kr)
Súrefnismettun í blóði (580 kr)
Mælingar eru framkvæmdar í Lyfju Lágmúla frá kl. 8-15 virka daga og í Lyfju Smáratorgi kl. 8-12 mánud.-fimmt.
Mæling á blóðfitu og blóðsykri er fastandi mæling.