Súrefnismettun í blóði
Í blóðinu eru rauð blóðkorn og í þeim er blóðrauðinn (hemóglóbín). Blóðrauðinn er stór sameind sem inniheldur járn, getur bundið súrefni og flutt það um líkamann. Það er þannig hlutverk blóðrauðans og rauðu blóðkornanna að binda súrefni í lungunum og flytja það til allra vefja líkamans sem verða að fá súrefni til að geta lifað og starfað eðlilega. Við eðlilegar aðstæður hjá ungu fólki er blóðrauðinn því sem næst 100% mettaður af súrefni í blóðinu sem kemur frá lungunum og er að finna í slagæðum líkamans. Súrefnismagn blóðsins ákvarðast bæði af lungnastarfsemi og ástandi hjarta og æðakerfisins. Eitt af því sem gerist hjá öldruðum er að súrefnismagn blóðsins (súrefnismettun blóðrauðans) minnkar vegna minnkaðrar starfsemi lungna og hjarta og teljast þessar breytingar til eðlilegra breytinga sem fylgja öldrun. Ýmislegt óeðlilegt getur einnig orðið til þess að súrefnismagn blóðsins minnkar og ef súrefnismettunin fer undir 85% getur sést blámi t.d. á vörum. Svona breytingar geta orðið við hjartabilun og ýmiss konar lungnasjúkdóma. Sumir anda illa vegna offitu, lömunar eða ofskömmtunar vissra lyfja og getur það leitt til lágrar súrefnismettunar í blóði. Sama er að segja um nokkra tiltölulega algenga lungnasjúkdóma eins og langvinna lungnateppusjúkdóma, astma og lungnabjúg. Eitt af því sem margir geta gert til að bæta súrefnismagn í blóði er að bæta líkamlegt ástand sitt með því að grennast og stunda heppilega hreyfingu eða líkamsþjálfun. Ef um er að ræða sjúkdóma í lungum eða hjarta þarf að meðhöndla þá eins og kostur er og forðast lyf eða annað sem slævir öndun. Þeir sem eru með lungnabilun, oftast vegna langvarandi reykinga, geta þurft á stöðugri súrefnisgjöf að halda og þurfa alltaf að hafa súrefniskút hjá sér.
Boðið er upp á eftirtaldar mælingar hjá Lyfju:
1. Blóðfita/kólesteról, blóðsykur, blóðþrýstingur, blóðrauði, beinþéttni og öndunarmæling - 5.490kr
2. Blóðfita/kólesteról, blóðsykur, blóðþrýstingur, blóðrauði og beinþéttni - 4.890kr
3. Blóðfita/kólesteról, blóðsykur, blóðþrýstingur og blóðrauði - 3.990kr
4. Blóðfita/kólesteról, blóðsykur og blóðþrýstingur - 3.490kr
Blóðþrýstingur (200 kr)
Beinþéttni (1090 kr)
Öndunarmælingar(1090 kr)
Blóðrauðamæling (580 kr)
Súrefnismettun í blóði (580 kr)
Mælingar eru framkvæmdar í Lyfju Lágmúla frá kl. 8-15 virka daga og í Lyfju Smáratorgi kl. 8-12 mánud.-fimmt.