Þú ert hér: Þjónusta > Spurðu sérfræðinginn
Spurðu sérfræðinginn

 

Velkomin(n) á ráðgjafasíðu Lyfju!
Lyfjafræðingar okkar geta leyst greiðlega úr spurningum þínum um flest allt sem lýtur að heilbrigði og heilsu, allt frá spurningum um minniháttar kvilla (t.d. kvef, hósta, verki) til lyfja og heilsuvara.

Áður en þú sendir okkur spurningu, þá vinsamlegast athugaðu hvort svipaðri spurningu hefur verið svarað hérna á vefnum. Reyndu líka vinsamlegast að vanda spurninguna þína og gefa greinargóðar upplýsingar þegar um er spurt.

Reynt verður að svara öllum spurningum innan 48 tíma en við áskiljum okkur rétt til lengri tíma um helgar og á helgidögum.

(Lyfja áskilur sér rétt til að birta spurningu þína, en án allra persónuauðkenna sem kunna að koma fram í spurningunni.)

Athugið
Ráðgjöf á vefnum kemur ekki í stað greiningu lækna eða meðferðar. Við munum reyna eftir fremsta megni að hjálpa fólki með vandamál sín og að efla skilning þess á þeim. Ef um er að ræða vanda sem þarfnast læknisfræðilegrar eða sálfræðilegrar meðferðar þá bendum við einstaklingi að leita til fagaðila eins fljótt og auðið er.

Greinar

- Almennt um náttúruefni

Lækningajurtir og önnur náttúrumeðul eru flokkuð sem "fæðubótarefni" og falla því undir annan hatt en bæði lyfseðilskyld lyf og lyf sem eru seld án lyfseðils. Þeim fjölgar sífellt sem nota þessi lyf í lækningaskyni og því þurfa bæði læknar og lyfjafræðingar að kunna skil á þeim.Rannsóknir sem voru...

Meira

Spurt og svarað

Gleymdi 2 dögum af pillunni

SælNú tekur þú ekki fram hvaða gerð pillunar þú ert að taka. Hefði verið þægilegra. En þetta gildir svona almennt um flestar: "Ef meira en 36 klst. (1½ dagur) líða á milli tafla þá er getnaðarvörnin ekki lengur örugg og því nauðsynlegt að nota aðra getnaðarvörn þar til spjaldið er búið, fyrir sumar ...

Meira