Heilsa og vellíðan

Heilsa og vellíðan > Útlitið > Hár > Greinar > Að velja nýjan háralit
Að velja nýjan háralit
Þegar kemur að því að velja nýjan háralit er reglan að hafa litinn ekki meira en tveim tónum til eða frá upprunalega litnum. Til þess að vera viss með litinn er sniðugt að byrja á því að setja skol í og sjá þá hvernig liturinn kemur út. Ef liturinn er að virka er óhætt að setja fastan lit í. Ef þú ætlar að skipta um lit, t.d. úr brúnu yfiir í ljóst og ef þú ert ekki viss hvernig þú átt að athafna þig, fáðu þá ráðgjöf frá fagmanni. Ekki er gott að lita mjög þurrt hár. Því er mjög mikilvægt að djúpnæra hárið vel nokkrum dögum áður en liturinn er settur í. Liturinn endist lengur í vel nærðu hári heldur en í þurru hári.