Heilsa og vellíðan

Heilsa og vellíðan > Útlitið > Hár > Greinar > Feitt hár
Feitt hár
Nokkur ráð gegn feitu hári: Eitt Það mikilvægasta sem hægt er að gera er að þvo hárið daglega. Ef vandamálið er mikið þá getur virkað vel að láta sápuna vera í hárinu í nokkrar mínútur áður en skolað er. Varist að greiða hárið í óhófi og harkalega þar sem sú meðferð ber fitu úr hársverðinum í hárið. Hormón geta haft áhrif á fituframleiðslu og því geta hlutir eins og streita sem hefur áhrif á hormónamagn í blóði, haft áhrif á fitumagn í hári.

Hægt er að mæla hormónamagn líkamans: Til eru bæði þvag- og blóðpróf til þess að mæla magn hinna mismunandi hormóna. Eitthvað af slíkum prófum er hægt að fá í Lyfju. Eins og t.d. egglosprófið sem mælir hLH (gulbússtýrihormón). Flest þau hormón sem skipta mestu máli varðandi hár þarf þó að mæla með blóðprufu. Þetta eru hormón eins og skjaldkirtilshormón, nýrnahettuhormón ofl..

Leitið læknis ef hárvandamálum fylgja aðrir óútskýrðir kvillar.