Hugsað um hárið í fríinu
Sif Bjarnadóttir
Fyrir ykkur sem litið reglulega á ykkur hárið er best að vera búin að lita það a.m.k. viku áður en farið er í fríið. Það er mikilvægt að leyfa litnum að jafna sig áður en hann fer í mikla sól.
Fyrir ykkur sem viljið hugsa vel um hárið ykkar í fríinu er nauðsynlegt að búa til "tékklista" sem þið pakkið niður samkvæmt:
• Sjampó og hárnæring, ekki er verra að hafa með sér góða djúpnæringu.
• Fyrir ykkur sem eruð með litað hár er alveg nauðsynlegt að nota sólarvörn í hárið, það kemur í veg fyrir að liturinn lýsist upp í sólinni. Það er bæði hægt að fá sólvörn sem er sérstaklega fyrir hárið og svo er líka hægt að fá sólvörn sem er bæði fyrir hár og líkamann.
• Þær mótunarvörur sem þið notið daglega, sprey, gel, froða, vax o.s.frv..
• Fylgihlutir fyrir hárið eru alveg nauðsynlegir, spennur, teygjur, klútar og hárspangir, þið komið sjálfsagt til með að hafa meiri tíma til að dúlla við hárið á ykkur í fríinu.
• Bylgjujárn, sléttujárn, vöfflujárn og krullujárn eru líka alveg nauðsynleg, munið bara eftir því að hafa með ykkur straumbreyti ef þess þarf og auka gashylki í krullujárnið.
• Hárblásara og blástursvökva.
• Rúllur eru algert möst, mjög einfalt. Rúlla, blása og spreyja. Gefur hárinu góða lyftingu.
Eitt er mjög mikilvægt að vita, farið í klippingu hér heima áður en þið farið út, ekki freista þess að fara í klippingu í fríinu. Slæm klipping gæti alveg eyðilagt fríið.