Heilsa og vellíðan

Heilsa og vellíðan > Útlitið > Hár > Greinar > Þurrt hár
Þurrt hár
Þurrt hár er hár sem inniheldur ekki nægjanlegan raka eða fitu. Það heldur því ekki eðlilegu útliti og gljáa. Þurrt hár getur átt sér ýmsar orsakir:
• Of tíður þvottur.
• Of sterk sápa.
• Hárið þurrkað of mikið eða oft með hárþurrku.
• Þurrt og slæmt umhverfi.
• Vöntun á næringu, t.d. B-vítamíni, sínki o.fl..
• Undirliggjandi sjúkdómar, t.d ofstarfsemi skjaldkirtils.

Hafið samband við lækni ef samfara hárvandamálum eru einhverjir aðrir óútskýrðir kvillar.