Baugar
Baugar myndast oftast þegar blóðrásin í kringum augun hættir að virka sem skyldi og háræðarnar bólgna út af blóði. Þar sem húðin í kringum augun er mjög þunn og viðkvæm sést það greinilega þegar bláæðarnar víkka og skilja eftir sig augljós merki… BAUGA. Bauga sem myndast vegna tímabundinnar stíflu í æðakerfinu er hægt að laga. Þeir geta skapast af ýmsum ástæðum s.s. stressi, áfengi og jafnvel of litlum svefni. Oft getur þetta einnig verið arfgengt og jafnvel stjórnast af litarhafti húðarinnar.