Það er mikið í umræðunni í dag hversu skaðlegt það er fyrir húðina að fara í ljós. Rannsóknir sýna að hátt hlutfall ungra kvenna sé að greinast með húðkrabbamein. Sem betur fer er fólk í dag meðvitaðara um skaðsemi ljósgeislanna og er farið að bregðast við því.
Sumir nota sólarvörn þegar þeir fara í ljós en aðrir eru farnir að nota “brúnkukrem”. Notkun á þessari líka stórsniðugu uppfinningu hefur aukist stórlega sem er ekkert annað en góð þróun. Til eru brúnkukrem bæði fyrir andlit og líkama. Það er hægt að fá þessi krem í mismunandi styrkleikum, fyrir þá sem vilja lítinn lit og svo fyrir þá sem vilji meiri lit.
Sumir halda að það sé mikið mál að bera á sig brúnkukrem en það er það alls ekki. Það er alveg óþarfi að vera hræddur við þetta. Það er mikilvægt að nota kornakrem áður en við berum á okkur brúnkukremið. Kornakremið tekur dauðu húðfrumurnar og gerir brúnkukreminu meira kleift að komast lengra niður í húðina sem þýðir varanlegri litur. Þetta á bæði við um andlit og líkama.
Það virðist vera algengur misskilningur að kremið geti gert mann flekkóttan. Kremið gerir mann ekki flekkóttan heldur er það hvernig þú berð kremið á þig. Það þarf að bera kremið jafnt og þétt á og passa sig á að gleyma ekki neinu svæði. Bera frekar minna á í einu og bæta svo við heldur en að geta ekki farið í vinnuna daginn eftir vegna flekkótts andlits. Sum krem er hægt að bera 2-3svar sinnum á yfir daginn. Þannig kemur liturinn jafnt og þétt í ljós.
Það er hægt að halda fallegum lit yfir allt árið með því að bera reglulega á sig brúnkukrem. Sagt er að ef maður noti brúnkukrem taki húðin betur við lit þegar hún loksins kemst í sól.
Sjá einnig eftirfarandi greinar:
SólarvarnarkremNjóttu sólarinnar með umhugsun