Heilsa og vellíðan

Heilsa og vellíðan > Útlitið > Húð > Greinar > Hrukkur og aðrar línur
Hrukkur og aðrar línur
Eiginleiki augans og möguleiki augnlokanna að opnast allt að 10.000 sinnum á dag gerir það að verkum að húðin á auðvelt með að mynda línur sem við svo oft köllum hrukkur. Hvað er það sem segir okkur að við verðum að fara að athuga hvort tími sé kominn á meðferð? Eru einhver ákveðin tákn sem við þurfum að fylgjast með?

Okkar fyrstu “hrukkur” eða “hláturs hrukkur” eins og við viljum svo oft kalla þær byrja að myndast við gagnaugað. Þessar hrukkur gera okkur fyrst ljóst að við erum að eldast. Við ættum í raun að taka þessu sem fyrstu aðvörun og í raun aðvörun sem segir okkur að nú sé tími til að byrja meðferð.

Fyrstu hrukkurnar sem myndast af völdum alvörugefni myndast fyrst undir augunum. Vegna þunga hafa vefirnir þá tilhneigingu að falla og mynda því línu/hrukku. Á þessu stigi er lítið magn af kollagen þráðum í húðlaginu á þessum stað og veitir það lítinn stuðning fyrir vefina sem svo á endanum dvína.

Eftir þetta eru svo hrukkur komnar útí óhóf, húðfrumurnar endurnýjast hægt, kollagenið verður stökkt og hrukkurnar verða dýpri. Sog- og bláæðakerfið hefur hægt á allri starfsemi sinni.