Heilsa og vellíðan

Heilsa og vellíðan > Útlitið > Húð > Greinar > Öldrun húðar
Öldrun húðar
Hvað gerist þegar maður eldist?

20 ára Húðin er áferðarfalleg og geislar sólarinnar eru byrjarðir að undirbúa framtíðar línur og hrukkur.

30 ára Fara að myndast fínar línur sérstaklega í kringum augu og varir. Húðin er farin að þorna og missa teygjanleika sinn. Sumar konur fá litabletti eftir þungun, af völdum hormóna eða af notkun getnaðarvarna. Einnig gæti álag valdið acne.

40 ára Línur myndast í kringum varir á enni og í kringum augu. Baugar verða algengir og blettir að völdum sólargeisla verða meira áberandi.

50 ára Húðin fer að þorna áberandi meira og hrukkur eru sjánlegri. Svipbrigða línur eru orðnar dýpri. Sumar konur eiga til að fá roða í andlit á breytingaraldrinum.

60 ára Línur og slöpp húð er meira áberandi en áður, undirhaka getur farið að sjást og hálsinn hrukkast.

70 ára Þegar við eldumst eru andlits og höfuðbein farinn að rýrna og húðin að slappast meira, útlínur andlitsins breytast. Húðin slappast í kringum augu og þau verða minni.

Áríðandi er að nota fyrirbyggjandi krem sem til er ætlast fyrir þá húðgerð og aldur sem á við hverju sinni.