Pokar undir augum
Húðin í kringum augun er einstaklega viðkvæm. Þykkt húðarinnar í kringum augnsvæðið er einungis 0,33 - 0,36 mm í samanburði við 1 - 1,6 mm fyrir aðra hluta andlitsins. Augun endurspegla í rauninni lífstíl okkar. Stress, reykingar, hiti og rafbylgjur eru allt hlutir sem við þurfum að verja augun okkar fyrir.
Eftir ákveðinn tíma kemur að því að húðin í kringum augun lætur á sjá og við eigum það á hættu að fá poka, bauga og hrukkur. Pokar undir augum geta myndast af ýmsum ástæðum - tár - lítill svefn - rafrænar bylgjur - notkun á snyrtivörum sem ekki eiga við okkur. Það eru einnig ýmsir þætti sem segja til sín eins og t.d. erfðaþættir og öldrun en það er fátt sem við gerum sem breytir því. Arfgengir pokar eru oft varanlegir og í samræmi við óeðlilegt botnfall fitu í kringum augun.