Skaðsemi UVA og UVB geisla
Þótt geislar sólarinnar séu aðalorkulind jarðarinnar geta þeir líka verið skaðlegir og þá sérstaklega húðinni. UVA-GEISLAR eru nánast hvar sem er á jörðinni. Þeir hafa samstundis áhrif á húðina og eru þeir geislar sem fólk með sólaróþol þarf að forðast UVB-GEISLAR eru sterkari geislar sem valda sólbruna í of löngu sólbaði. Bæði A og B geislar geta valdið húðkrabbameini og stuðla að aukinni öldrun fyrirfram s.s. húðþykknun/hrukkum/línum. Sólarvörn er húðinni bráðnauðsynleg ef dvalið er í lengri tíma í sólinni, erlendis sem hérlendis. Bera skal á hreina húðina sólarvörn sem hentar húðgerð þinni. Ljós húð þarf minnst vörn SPF15. Sólarvörn með háu gildi UVA geislavarnar er mjög hentug fyrir viðkvæma húð til að hindra sólarofnæmi/exem. Best er að byrja með sólvörn með háum stuðli, og vinna sig svo niður þegar líður á ferðina. Þannig er hægt að ná góðum lit sem helst vel á. Því lengri tíma sem þú tekur í að ná litnum, því lengur endist hann.