Heilsa og vellíðan

Heilsa og vellíðan > Útlitið > Húð > Greinar > Unglingabólur
Unglingabólur
Unglingabólur eða gelgjubólur hafa lengi verið taldar ómerkilegur sjúkdómur en það má leið rök að því að enginn sjúkdómur valdi eins mörgu fólki á aldrinum frá 13 ára til 25 ára jafn mikilli vanlíðan. Um sjúkdóm er að ræða þegar bólurnar eru þrálátar og svæsnar. Bólurnar skilja ef til vill ekki aðeins eftir djúpar og ljótar skemmdir í húðinni , heldur kannski varanleg ör í sálinni líka. Þennan sjúkdóm þýðir ekkert að meðhöndla með gömlum húsráðum heldur með mikilli alvöru. Unglingabólur er krónískur bólgusjúkdómur í hársekkjum og fitukirtlum húðarinnar. Hann getur komið fram hvar sem er á líkamanum þar sem hár vex, en aðallega í andliti á baki og bringu. Á kynþroskakeiðinu eykst mjög starfsemi fitukirtlanna í húðinni og ber mest á þessu á framangreindum stöðum. Sérstök hormón sem kölluð eru andogen valda þessum breytingum í húðinni, og hallast menn að því að þeir sem fá bólur séu á einhvern hátt óðeðlilega viðkvæmir fyrir þessum hormónum. Unglingabólur geta verið arfgengar. Bólurnar eru nánast jafn algengar hjá báðum kynjum, þær ná hámarki fyrr hjá stúlkum, eða um 14 ára aldur, en um 16 ára aldur hjá drengjum. Þeir sem þjást af bólum vilja auðvitað fá skjótan bata en þetta tekur alltaf ákveðinn tíma og það er um að gera að sýna þolinmæði. Það er hægt að leita sér læknisaðstoðar ef um stórt vandamál er að ræða annars eru í boði á markaðnum margvíslegar vörutegundir til þess að halda sjúkdómnum í skefjum. Mikilvægast er að halda húðinni hreinni, þvo sér helst kvölds og morgna þannig er hægt að halda bakteríuflórunni í skefjum. Rétt er að vara fólk við því að kreista bólur en þeir sem vilja endileg gera það munið að hita andlitið áður en þið kreistið annað hvort með heitri gufu eða heitum bakstri. Það er ekki æskilegt að kreista því það skilur í flestum tilfellum eftir sig ör sem verða sýnileg þegar húðin er búin að jafna sig á bólunum.