Heilsa og vellíðan

Heilsa og vellíðan > Útlitið > Húð > Greinar > Verðu þig fyrir sólinni
Verðu þig fyrir sólinni
Sumarið er fyrir marga tími sólbaða enda ánægjulegt að njóta hitans og fá lit á kroppinn. Það er þó full ástæða til að verja allar húðgerðir fyrir skaðlegum áhrifum sólarinnar og sólbruna sérstaklega. Það að húðin verði sólbrún er í raun varnarviðbrögð húðarinnar en sólbruni getur síðar á ævinni komið fram sem húðkrabbamein. Misjafnt er hversu lengi húðin getur verið óvarin í sól án þess að hún roðni. Um marga gildir 15-20 mínútur sem hámarkstími í þessu sambandi. Sólaráburðir eru með mismikilli vörn en stuðullinn sem gefinn er til kynna á pakkningum, t.d. stuðullinn 8, merkir að viðkomandi getur verið í 8 sinnum lengur í sól án þess að húðin brenni (8 x 20 mínútur).

Mikilvægt er að vanda valið á sólarvörn og nota einungis sólarvörn með UVA/UVB vörn. Bera skal vörnina á sig 20-30 mín. áður en farið er í sól. Öruggast er að nota háa stuðla fyrstu 1-2 vikurnar og vera ekki lengur í sólbaði en 15-20 mínútur fyrsta daginn. Helst ætti ekki að nota lægri stuðla en 15-20 og aldrei lægri stuðul en 8 á fullorðna.

Ástæða er til að gæta enn meiri varkárni með börn. Í raun er húð barna ekki orðin fullþroskuð fyrr en á unglingsaldri og því nauðsynlegt að verja þau betur. Ef húðin brennur t.d. á æskuárum eru meiri líkur á húðkrabbameini síðar meir á lífsleiðinni. Nota skal stuðul 50 á ungabörn en þau ættu aldrei að vera berskjölduð í sól.

Annað sem vert er að hafa í huga:
• Mikilvægt er að drekka vel af vatni í miklum hita og sól til að vega upp á móti vökvatapi.
• Geislar sólarinnar eru sterkastir milli kl. 11 og 14 á daginn.
• Nálægð við vatn, sjó og snjó margfalda hættuna á sólbruna, því skal bera endurtekið á húðina við slíkar kringumstæður.
• Hugsa skal vel um húðina eftir sólböð, t.d. nota kælandi Aloe Vera gel eða "Aftersun" krem því húðin er lengi að jafna sig eftir að hafa verið í sól.
• Ekki gleyma vörn fyrir varirnar, t.d er Hawaiian Tropic varasalvinn með sólvarnarstuðul 40 en hann er einnig gott að nota á nef, eyru og í hársvörð.

Í Lyfju fæst mikið úrval af sólaráburði með sólvarnarstuðul allt upp í 50 sem og aftersun vörum og sjálsbrúnkukremum fyrir þá sem vilja brúnku án sólar. 

Sjá einnig eftirfarandi greinar:

Njóttu sólarinnar með umhugsun
Sólarvarnarkrem
Meðferð húðar eftir sólböð