Hvað fer hverjum?
Það er fyrst og fremst smekksatriði og lyktarskin hvers og eins sem ákvarðar hvað fer hverjum og einum. Sagt er að ef viðkomandi finni ekki lyktin af sjálfum sér fari lyktin viðkomandi vel. Þetta fer einnig eftir stemmningu hjá einstaklingnum hverju sinni hvað honum líkar. Í flestum tilfellum vill fólk léttan ilm á daginn en aðeins þyngri á kvöldin. Þess vegna eiga allar konur og menn að eiga fleiri en einn ilm. Árstíðirnar geta líka spilað stórt hlutverk í vali á ilmi. Á haustin og á veturna sækja konur frekar í þyngri ilmi en með hækkandi sól og hita vilja þær léttari ilmi.
© Copyright 2002-2013, Lyfja hf. Allur réttur áskilinn.