Heilsa og vellíðan

Heilsa og vellíðan > Útlitið > Neglur
Neglur
Neglur eru eitt af því fyrsta sem við tökum eftir þegar við hittum fólk í fyrsta skipti. Sumum konum finnst það mikið mál að viðhalda fallegum nöglum. Það er allt til alls og ekkert sem stendur í vegi fyrir því að við konur gefum okkur 5 mínútur áður en við leggjumst á koddan til þess að jóðla smá kremi á hendurnar á okkur. Um leið og hendurnar eru orðnar góðar þarf einungis að halda þeim við. Naglabandaolía eða naglabandakrem og handáburður er eitthvað allar konur eiga að vera með á náttborðinu. Æsksilegt er að vera með naglakk á nöglunum til þess að verja þær fyrir öllu áreitinu. Sagt er að fallegar hendur og neglur auki sjálfstraust og vellíðan kvenna.