Heilsa og vellíðan

Heilsa og vellíðan > Útlitið > Neglur > Greinar > 10 ábendingar varðandi neglur og handhirðu
10 ábendingar varðandi neglur og handhirðu
1. Reyndu að komast hjá því að nota lakkeyðir með acentoni í, það þurrkar upp neglurnar. Notaðu frekar lakkeyðir sem er án acentons og er með olíum í.

2. Notaðu handáburð eftir handþvotti. Þannig mettast hendurnar jafnt og þétt af raka.

3. Notið gúmmíhanska þegar þið vaskið upp, þá getið þið komið í veg fyrir að neglurnar verði mjúkar.

4. Ef þú ert með lélegar neglur, getur þú styrkt neglurnar með því að setja undirlakk á álagsstaðina áður en þú setur naglalakkið á.

5. Þurrkaðu blautt naglalakk með því að setja þær undir kalt vatn.

6. Ef þú þarft að laga brotna nög eða spurunu í nöglinni getur þú rifið smá bút af tepoka eða kaffi filter og límt á spruguna. Þegar það er síðan þurrt skaltu pússa yfir með naglaþjöl. Eftir það er nöglin eins ný, en gott er að setja lakk yfir til þess að styrkja nöglina.

7. Ef það stendur til að fara að laga til í garðinum eða taka til í bískúrnum, náðu þér í gamaldags sápustykki og kroppaðu með nöglunum í sápuna svo að sápan safnist saman undir neglurnar. Þannig komast óhreinindi ekki undir neglurnar. Notið auðvitað hanska.

8. Ef blek eða erfiðir blettir setjast á neglurnar, burstið með tannkremi og tannbursta á þau svæði.

9. Alls ekki þjala neglurnar strax eftir bað eða sturtu. Þær eru svo mjúkar og geta þá mjög auðveldlega brotnað.

10. Notið eyrnarpinna til þess að þrífa skít undan nöglunum, ekki nota bursta eða naglapinna.