Gular neglur
Helsta ástæðan fyrir því að neglur verða gular er sú að ekki hefur verið notað undirlakk þegar dökkt naglalakk er notað. Munið, ein umferð af undirlakk kemur í veg fyrir gular og ljótar neglur. Það er líka hægt að koma í veg fyrir það að þetta gerist með því að nota einfaldlega ljósari liti sem eru ekki eins líklegri til þess að lita neglurnar. Ef guli liturinn er fastu á nöglunum, reyndu þá að nudda nöglunum upp úr sítrónusafa og settu svo góðan handáburð til að ná upp góðum raka. Ef þú getur, slepptu þá naglalakki í eina viku.
© Copyright 2002-2012, Lyfja hf. Allur réttur áskilinn.