
Það
getur verið vandasamt að velja meik. Það þarf að byrja á því að greina
húðtegundina. Það eru til meik sem henta öllum húðtegundum. Þegar búið
er að greina tegund húðar er liturinn valinn. Það virðist vera algengur
misskilningur að meik séu til þess að dekkja húðlitinn og gera mann
brúnann. Meik er notað til þess að jafna út húðlitinn okkar. Liturinn
er valinn í samræmi við húðlit viðkomandi. Liturinn á meikinu á að vera
sem næst húðlitnum. Ef valinn er of dökkur litur myndast svokölluð
“gríma” skilin sjást ef kjálkabeinið og hálsinn eru borin saman. Þetta
er ekki fallegt að sjá. Ef við viljum fá frísklegra útlit getum við
bæði notast við svokölluð sólarpúður eða kinnalit. Sólarpúður er
annaðhvort einn litur eða nokkrir saman. Þetta eru brúntóna litir sem
gefa mjög frísklegt og fallegt útlit þegar þeim er strokið yfir
andlitið, eitthvað sem allar konur ættu að eiga. Það er líka hægt að
nota gamla góða kinnalitinn, hann fer aldrei úr tísku.