Heilsa og vellíðan

Heilsa og vellíðan > Útlitið > Snyrtivörur > Greinar > Að velja meik
Að velja meik
Það getur verið vandasamt að velja meik. Það þarf að byrja á því að greina húðtegundina. Það eru til meik sem henta öllum húðtegundum. Þegar búið er að greina tegund húðar er liturinn valinn. Það virðist vera algengur misskilningur að meik séu til þess að dekkja húðlitinn og gera mann brúnann. Meik er notað til þess að jafna út húðlitinn okkar. Liturinn er valinn í samræmi við húðlit viðkomandi. Liturinn á meikinu á að vera sem næst húðlitnum. Ef valinn er of dökkur litur myndast svokölluð “gríma” skilin sjást ef kjálkabeinið og hálsinn eru borin saman. Þetta er ekki fallegt að sjá. Ef við viljum fá frísklegra útlit getum við bæði notast við svokölluð sólarpúður eða kinnalit. Sólarpúður er annaðhvort einn litur eða nokkrir saman. Þetta eru brúntóna litir sem gefa mjög frísklegt og fallegt útlit þegar þeim er strokið yfir andlitið, eitthvað sem allar konur ættu að eiga. Það er líka hægt að nota gamla góða kinnalitinn, hann fer aldrei úr tísku.